Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 05. ágúst 2022 16:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alisson er 100 prósent klár
Alisson Becker.
Alisson Becker.
Mynd: EPA
Alisson, markvörður Liverpool, var fjarri góðu gamni þegar Liverpool spilaði við Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi.

Alisson var á meiðslalistanum eftir að hann varð fyrir hnjaski á undirbúningstímabilinu.

En hann er búinn að æfa á fullu síðustu daga og verður klár í slaginn fyrir morgundaginn þegar Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

„Það er í góðu lagi með hann," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, þegar spurt var út í Alisson á fréttamannafundi í dag.

Hann mun því byrja gegn Fulham á morgun. Ibrahima Konate, Diogo Jota, Curtis Jones, Kostas Tsimikas og Alex Oxlade-Chamberlain eru þó allir á meiðslalistanum fyrir morgundaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner