Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. ágúst 2022 13:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willian aftur í enska boltann?
Willian.
Willian.
Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Willian er mögulega á leið aftur í enska boltann.

Nýliðar Fulham hafa áhuga á því að krækja í Willian frá Corinthians, en þetta herma heimildir vefmiðilsins Goal.

Willian, sem er 33 ára, er fyrrum leikmaður bæði Arsenal og Chelsea. Hann átti heilt yfir góðan tíma með Chelsea en tími hans hjá Arsenal var ekki eins góður.

Arsenal ákvað að rifta samningi hans tveimur árum fyrr til þess að losna við hann.

En núna gæti hann verið á leið aftur í enska boltann. Hann og fjölskylda hans bjuggu í London í níu ár og er hann sagður opinn fyrir þeirri hugmynd að snúa aftur og ganga til liðs við Fulham.
Athugasemdir
banner
banner