Það er gluggadagur! Hér er allt helsta slúðrið úr enska blöðunum.
Matteo Guendouzi (21) miðjumaður Arsenal er á leið til Hertha Berlín á láni. (Mirror)
Tottenham ætlar að gera lokatilraun til að fá Milan Skriniar (25) varnarmann Inter. (Mirror)
Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, útilokar ekki að Moussa Dembele (23) fari frá liðinu í dag. Manchester United hefur áhuga. (Evening Standard)
Memphis Depay (26) hefur samþykkt að ganga til liðs við Barcelona. (Goal)
Juventus vill fá Emerson Palmieri (26) á láni frá Chelsea. (Calciomercato)
Arsenal er ekki tilbúið að borga riftunarverð upp á 45 milljónir punda fyrir miðjumanninn Thomas Partey, miðjumann Atletico Madrid. (Mirror)
Southampton hefur óskað eftir að fá vinstri bakvörðinn Brandon Williams (20) á láni frá Manchester United. (Telegraph)
Sheffield United mun hafa betur gegn WBA í baráttuni um Habib Diallo (25) framherja Metz. (Le 10 Sport)
Jean-Clair Todibo (20), varnarmaður Barcelona, gæti verið á förum á láni. Fulham og Everton hafa áhuga. (Le 10 Sport)
Bayern Munchen mun snúa sér að Douglas Costa (30) kantmanni Juventus ef Callum Hudson-Odoi (19) kemur ekki frá Chelsea. (Kicker)
Celtic vill fá miðjumanninn Robert Snodgrass (33) á láni frá West Ham. (Sun)
Brighton ætlar að fá pólska miðjumanninn Jakub Moder (21) á 10,4 milljónir punda frá Lech Poznan. Moder verður lánaður aftur til Póllands í vetur. (Super Express)
Ónefnt félag í ensku úrvalsdeildinni hefur boðið 22 milljónir punda í Geoffrey Kondogbia (27) miðjumann Valencia. (Marca)
Justin Kluivert (21) kantmaður Roma er á leið til RB Leipzig á láni. (Football Itaia)
Athugasemdir