Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. október 2022 20:31
Brynjar Ingi Erluson
Gulacsi sleit krossband - Frá út tímabilið
Peter Gulacsi
Peter Gulacsi
Mynd: EPA
Ungverski markvörðurinn Peter Gulacsi verður ekki meira með Leipzig á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband í 3-1 sigri liðsins á Celtic í Meistaradeildinni í kvöld.

Gulacsi meiddist á 11. mínútu leiksins. Josko Gvardiol setti hann undir pressu með slakri sendingu til baka og neyddist markvörðurinn til að fara í það að hreinsa boltann.

Í kjölfarið meiddist Gulacsi og þurfti að yfirgefa völlinn á börum en nú hefur Leipzig greint frá alvarleika meiðslanna.

Gulacsi sleit krossband í hné og er því ljóst að hann verður ekki meira með á tímabilinu.

Þungt högg fyrir Leipzig en Gulacsi er með bestu markvörðum þýsku deildarinnar og hefur verið síðustu ár.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner