Fotbolti.net
05.10.24 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Skoraði tvennu í sigri Mainz

Jonathan Burkardt

Jonathan Burkardt

Canon

Mynd: EPA

<b>St. Pauli 0 - 3 Mainz</b>
0-1 Jonathan Michael Burkardt ('5 )
0-2 Armindo Sieb ('16 )
0-3 Jonathan Michael Burkardt ('62 )

Mainz lagði St. Pauli af velli í þýsku deildinni í kvöld. Mainz komst yfir snemma leiks þegar Jonathan Burkardt skoraði með skalla eftir að varnarmenn St. Pauli áttu erfitt með að koma boltanum frá.

Tíu mínútum síðar sendi varnarmaður St. Pauli boltann beint á Nadiem Amiri miðjumann Mainz, hann sendi boltann í gegn á Armindo Sieb sem tvöfaldaði forystu liðsins.

Burkardt innsiglaði sigur Mainz þegar hann batt endahnútinn á vel útfærða skyndisókn.

Þetta var annar sigur Mainz á tímabilinu en liðið er með átta stig eftir sex umferðir í tíunda sæti. Nýliðar St. Pauli eru með fjögur stig í 15. sæti en liðið vann Freiburg í síðustu umferð.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Dortmund4+712
2Bayern4+1210
3Freiburg4+910
4Augsburg4+57
5Leverkusen4+57
6Mainz4+47
7Elversberg4+17
8Werder407
9RB Leipzig4+46
10Frankfurt4-15
11Schalke 044-15
12Paderborn4-24
13Köln4-34
14Hoffenheim4-33
15Stuttgart4-33
16Hamburger4-113
17Union Berlin4-131
18Gladbach4-100
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.