Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 06. febrúar 2021 22:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mistök markvarðanna, glæsimark Fernandes og dramatíkina í lokin
Fernandes skoraði mjög flott mark.
Fernandes skoraði mjög flott mark.
Mynd: Getty Images
Manchester United og Everton áttust við í ótrúlegum fótboltaleik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikurinn endaði 3-3. Man Utd leiddi 2-0 í hálfleik en Everton jafnaði í 2-2 snemma í síðari hálfleik. Man Utd tók aftur forystuna en Everton jafnaði svo á síðustu stundu leiksins.

Manchester Utd 3 - 3 Everton
1-0 Edinson Cavani ('24 )
2-0 Bruno Fernandes ('45 )
2-1 Abdoulaye Doucoure ('49 )
2-2 James Rodriguez ('52 )
3-2 Scott McTominay ('70 )
3-3 Dominic Calvert-Lewin ('90 )

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum sem var sýndur á Síminn Sport. David de Gea og Robin Olsen, markverðir liðanna, áttu ekki góðan dag. De Gea gerði mistök í fyrsta marki Everton og Olsen átti að gera mun betur í þriðja marki Man Utd. Þá gerði Bruno Fernandes glæsilegt mark í fyrri hálfleik. Það má allt saman sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner