Spilað var í sænska boltanum í dag og voru Íslendingar í eldlínunni.
Í Svíþjóð er bikarkeppnin spiluð í riðlum til að byrja með. Malmö vann 4-1 sigur á Halmstad þar sem Arnór Ingvi Traustason spilaði hálftíma. Malmö var úr leik fyrir leikinn í dag.
Trelleborgs vann Lodde 3-1 á meðan Sirius gerði jafntelfi gegn Orebro. Trelleborgs fer því áfram en Sirius er úr leik í ár. Aron Bjarnason spilaði fyrstu 67. mínúturnar í liði Sirius.
Í kvennaboltanum mættust Uppsala og Djurgarden í æfingaleik. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Djurgarden og skoraði þriðja mark liðsins á 44. mínútu. Leiknum lauk með 1-6 sigri Djurgarden.
Athugasemdir