Lið vikunnar í enska - Pedro fer með himinskautum

Markvörður: Matz Sels (Nottingham Forest) - Gat ekkert gert í mörkunum sem Manchester City skoraði en átti risastóran þátt í því að koma stiginu yfir línuna í 2-2 jafntefli.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Gabriel Magalhaes (Arsenal) - Var algjört skrímsli í vörn Arsenal sem vann Brighton.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Dan Burn (Newcastle) - Átti glæsilega frammistöðu í sigrinum gegn Manchester United. Hann er hjartsláttur liðsins og drifkraftur.

Mynd: EPA

Varnarmaður: James Tarkowski (Everton) - Stórhættulegur í föstum leikatriðum og skoraði í 2-0 sigri gegn Burnley.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Andre (Wolves) - Brassinn er hrikalega öflugur og skoraði sigurmarkið gegn Liverpool.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Declan Rice (Arsenal) - Alltaf réttur maður á réttum stað.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Elliot Anderson (Nottingham Forest) - Skoraði glæsilegt mark gegn City og er sterklega orðaður við liðið.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Adam Wharton (Crystal Palace) - Átti frábæra stoðsendingu í sigrinum gegn Tottenham. Það verður hægara sagt en gert fyrir Palace að halda honum.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Crysencio Summerville (West Ham) - Er að spila frábærlega fyrir West Ham og skoraði sigurmarkið gegn Fulham.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Ismaila Sarr (Crystal Palace) - Tvö mörk, hraði og kraftur.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Joao Pedro (Chelsea) - Þrjú mörk og stoðsending í sigrinum gegn Aston Villa. Leikmaður umferðarinnar.

Mynd: EPA


Mynd: BBC

Stjórinn: Regis Le Bris (Sunderland) - Frábær sigur Sunderland gegn Leeds.

Mynd: EPA


