Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 06. júní 2020 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Arsenal rúllaði yfir Charlton - Nketiah með þrjú
Mynd: Getty Images
Arsenal 6 - 0 Charlton
1-0 Alexandre Lacazette
2-0 Pierre-Emerick Aubameyang
3-0 Eddie Nketiah
4-0 Eddie Nketiah
5-0 Eddie Nketiah
6-0 Joe Willcok

Arsenal skoraði sex mörk í æfingaleik gegn Charlton á Emirates leikvanginum í dag. Þetta var fyrsti æfingaleikur Arsenal á undirbúningstímabilinu.

Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette skoruðu í fyrri hálfleik og leiddi Arsenal í leikhlé.

Hinn 21 árs Eddie Nketiah hefur fengið hlutverk í liði Arsenal eftir að Mikel Arteta tók við og skoraði hann þrennu eftir leikhlé, áður en Joe Willcok fulkomnaði 6-0 sigur.

Arsenal heldur enn í vonina um að ná Evrópusæti í úrvalsdeildinni á meðan Charlton er í fallbaráttu Championship deildarinnar.



Athugasemdir
banner