Liverpool og Arsenal sýna Mbeumo áhuga - Hvenær tekur Amorim við Man Utd? - Arsenal vinnur að því að fá Sane
banner
   fim 06. júní 2024 19:43
Elvar Geir Magnússon
London
Líkleg byrjunarlið Englands og Íslands
Icelandair
Harry Kane er fyrirliði enska landsliðsins.
Harry Kane er fyrirliði enska landsliðsins.
Mynd: EPA
Íslenska landsliðið æfði á Wembley í dag.
Íslenska landsliðið æfði á Wembley í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
England og Ísland leika vináttulandsleik á Wembley annað kvöld en um er að ræða síðasta undirbúningsleik enska liðsins fyrir Evrópumótið í Þýskalandi.

Gareth Southgate tefldi fram hálfgerðu varaliði á mánudaginn þegar England vann 3-0 sigur gegn Bosníu en mun væntanlega stilla upp sterkara liði gegn Íslandi.

Jude Bellingham kom seinna til móts við hópinn eftir að hafa spilað í sigri Real Madrid gegn Borussia Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardag og ekki búist við því að hann spili.

Luke Shaw er ekki klár í slaginn og búast má við því að Kieran Trippier spili öfugan bakvörð og leysi af vinstra megin. Sterkustu vopn Englands eru sóknarlega og hörð barátta er um sæti á miðsvæðinu.



Þeir leikmenn sem við settum í líklegt byrjunarlið Íslands eftir að hópurinn var valinn eru allir klárir í slaginn eftir bestu vitneskju. Leikur Englands og Íslands hefst 18:45 á morgun.


Athugasemdir
banner
banner
banner