Fotbolti.net
06.07.18 - 22:28
Sverrir Örn Einarsson

Jakob: Kemur bara panikk í okkar leik

Auglýsing
Jakob Leó þjálfari Hauka (t.v)

Jakob Leó þjálfari Hauka (t.v)

Canon

Mynd: haukar.is

Hertz
Haukar sóttu ekki gull í greipar Keflvíkinga í leik liðanna í Inkasso deild kvenna sem fram fór á Nettóvellinum í kvöld en lokatölur urðu 5-2 Keflavík í vil.
„Þetta var ekki það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum að spila okkar leik, láta boltann rúlla og spila fótbolta og reyna komast ofarlega á völlinn og afturfyrir þær. Þær komu okkur svolítið á óvart, pressuðu okkur hærra en við bjuggumst við og það kemur bara panik í okkar leik“.

Sagði Jakob Leó þjálfari Hauka um leik sínna kvenna í kvöld.

Haukar komu beittari til leiks í síðari hálfleik eftir að hafa lent 4-0 undir í þeim fyrri og minnkuðu munin í 4-2 áður en Keflavík kláraði leikinn endanlega með fimmta marki sínu.

„Við ákváðum að núllstilla okkur í hálfleik og skerpa á hlutunum og breyttum aðeins . Skorum tvö góð mörk og það er plúsinn sem við tökum með okkur í næsta leik “.

Sagði Jakob Leó þjálfari Hauka en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.