Fotbolti.net
06.07.21 - 22:35
Victor Pálsson

Saka klár fyrir leikinn gegn Dönum

Saka klár fyrir leikinn gegn Dönum
Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Ungstirnið Bukayo Saka verður klár fyrir leik Englands og Danmerkur á morgun í undanúrslitum EM.
Þetta staðfesti landsliðsþjálfari Englands, Gareth Southgate, í gær en Saka var ekki með í síðasta leik gegn Úkraínu.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hafði spilað vel á mótinu en meiddist svo fyrir leikinn í 8-liða úrslitunum.

Southgate staðfesti að Saka væri á góðum batavegi og að hann yrði klár fyrir þennan gríðarlega mikilvæga leik.

Saka byrjaði ekki fyrstu tvo leiki Englands í riðlakeppninni en var svo frábær í þriðja leiknum gegn Tékkum þar sem hann var valinn maður leiksins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.