Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus hrósar Kevin De Bruyne, liðsfélaga hans hjá Manchester City, í hástert í viðtali við heimasíðu félagsins.
De Bruyne hefur verið einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár en hann jafnaði stoðsendingamet Thierry Henry á síðasta tímabili.
Hann lagði upp 20 mörk og skoraði 13 en Jesus segir að De Bruyne hefði auðveldlega getað lagt upp fleiri mörk.
„Hann getur lagt upp þrjú eða fjögur mörg í leik fyrir okkur. Hann er það góður," sagði Jesus.
„Við klúðruðum mörgum dauðafærum á þessu tímabili og ef við hefðum nýtt þau þá hefði De Bruyne verið með 30 stoðsendingar. Hann er með svo mikil gæði og reynir alltaf að finna sóknarmennina. Það er svo gaman að spila með honum," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir