Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 06. ágúst 2020 20:08
Brynjar Ingi Erluson
Lille að kaupa Jonathan David frá Gent
Jonathan David er á leið til Lille
Jonathan David er á leið til Lille
Mynd: Getty Images
Belgíska félagið Gent hefur samþykkt 30 milljón evra tilboð Lille í Jonathan David en franskir fjölmiðlar fullyrða þetta í dag.

Kanadíski leikmaðurinn átti frábært tímabil í Belgíu en hann skoraði 23 mörk og lagði upp 10 í 40 leikjum með Gent.

Stærstu félög heims hafa fylgst náið með honum og sent njósnara á leiki Gent en nú virðist Lille vera að ganga frá kaupum á honum.

Samkvæmt frönsku miðlunum hefur Gent samþykkt 30 milljón evra tilboð Lille í leikmanninn og mun hann ganga í raðir félagsins á næstu dögum.

David verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Lille en hæsta sem Lille hefur borgað fyrir leikmann er fyrir Renato Sanches sem kom frá Bayern München á síðasta ári.

David mun leysa Victor Osimhen af hólmi en hann samdi við ítalska féalgið Napoli á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner