þri 06. september 2022 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aubameyang gæti spilað sinn fyrsta leik í kvöld
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang gæti komið inn í byrjunarlið Chelsea þegar liðið mætir Dinamo Zagreb á útivelli í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Chelsea keyptir Aubameyang frá Barcelona á lokadegi félagsskiptagluggans. Hann er meiddur á kjálka og þyrfti því að vera með grímu ef hann spilar leikinn.

„Hann getur ekki spilað 90 mínútur og því er það undir okkur komið að finna lausnina hvort hann byrji eða komi inn á. Hann þarf á mínútu mað halda til að komast í sitt besta form og í takt," sagði Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, á fréttamannafundi í gær.

Tuchel greindi þá frá því að Denis Zakaria hefði ferðast með en hann kom frá Juventus á lokadegi gluggans. Thiago Silva ferðaðist ekki með, er hvíldur.
Athugasemdir
banner
banner