Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. október 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton að kaupa tvo Pólverja fyrir 15 milljónir
Mynd: Getty Images
Enskir og pólskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöldi að félagaskipti Jakub Moder og Michal Karbownik til Brighton væru frágengin en engin staðfesting hefur borist.

Brighton er sagt borga á bilinu 7 til 11 milljónir evra fyrir Moder og 3 til 6 milljónir fyrir Karbownik. Báðir skrifa þeir undir fimm ára samninga og eru lánaðir aftur út til félaga sinna í Póllandi.

Moder er 21 árs miðjumaður sem hefur skoraði 7 mörk í 32 leikjum með Lech Poznan í efstu deild pólska boltans. Hann spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrr á árinu og á 36 leiki að baki fyrir yngri landsliðin.

Karbownik er 19 ára vinstri bakvörður sem getur einnig spilað á miðjunni eða sem hægri bakvörður. Hann spilaði 33 leiki fyrir Legia Varsjá á síðustu leiktíð og var kallaður upp í pólska landsliðshópinn í fyrsta sinn í ár. Karbownik á 31 leik að baki fyrir yngri landslið Póllands.
Athugasemdir
banner
banner