Manchester United hefur staðfest það að Edinson Cavani muni klæðast treyju númer sjö hjá félaginu.
Úrúgvæski framherjinn samdi við United á lokadegi félagaskiptagluggans í gær en hann gerði eins árs langan samning við félagið.
Cavani er reynslumikill framherji en hann lék lengi með Paris Saint-Germain í Frakklandi og raðaði inn mörkum.
Þessi 33 ára gamli leikmaður fékk þó takmarkað að spila á síðustu leiktíð og skoraði aðeins sjö mörk í 22 leikjum.
United tryggði Cavani sér á frjálsri sölu en ljóst er að leikmaðurinn mun fá há laun næsta árið eða allt að 20 milljónir punda.
Það eru margar goðsagnir sem hafa klæðst treyju númer sjö hjá United og má nefna leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Eric Cantona, David Beckham og George Best.
👕 7️⃣@ECavaniOfficial will become the latest Red to don our number seven shirt 🔴#MUFC
— Manchester United (@ManUtd) October 6, 2020
Athugasemdir