Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. október 2022 18:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn Union skutu flugeldum að stuðningsmönnum Malmö
Stuðningsmenn Union Berlin í kvöld
Stuðningsmenn Union Berlin í kvöld
Mynd: EPA
Einum leik er enn ólokið í Evrópukeppnum í kvöld en það er viðureign Malmö og Union Berlin í D-riðli Evrópudeildarinnar.

Leikurinn fór af stað en stuðningsmenn Union létu öllum illum látum og var ákveðið að fresta leiknum.

Þýsku stuðningsmennirnir komust með flugelda í stúkuna og skutu í átt að stuðningsmönnum Malmö og inná völlinn. Leikmenn voru sendir inn í klefa á meðan reynt var að leysa málin.

Hasarnum var ekki lokið þegar liðin voru komin inn í klefa en þá sprakk sprengja á vellinum.

Leikurinn er hafinn að nýju og eru gestirnir með 1-0 forystu en manni færri þegar tæpar 5 mínútur eru til leiksloka.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner