„Á þessum kafla tímabilsins þarftu að vera klókur með hópinn," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool á fréttamannafundi í dag.
Liverpool á sjö leiki framundan á næstu 22 dögum en Klopp byrjaði með Mohamed Salah og Roberto Firmino á bekknum í 5-2 sigrinum á Everton í vikunni.
Liverpool á sjö leiki framundan á næstu 22 dögum en Klopp byrjaði með Mohamed Salah og Roberto Firmino á bekknum í 5-2 sigrinum á Everton í vikunni.
„Þegar þú ert stuðningsmaður þá ertu með 'bestu 11' og þú vilt alltaf láta þá spila en þetta er ekki FIFA eða Playstation," sagði Klopp.
„Við þurfum að gera svona hluti. Ef við höfum tækifæri til þess þá gerum við það."
Liverpool heimsækir Bournemouth á morgun klukkan 15:00 áður en liðið mætir Salzburg í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.
Athugasemdir