Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 07. janúar 2022 14:06
Elvar Geir Magnússon
Digne tilkynnti Benítez að hann vill yfirgefa Everton
Digne vill fara frá Everton.
Digne vill fara frá Everton.
Mynd: EPA
Lucas Digne, varnarmaður Everton, vill yfirgefa félagið. Rafa Benítez, stjóri félagsins, hefur staðfest þetta.

Digne hefur ekki spilað síðan 1. desember en ýmis félög hafa áhuga á því að fá hann í sínar raðir, þar á meðal Newcastle.

„Digne sagði mér að hann vildi ekki vera hérna. Hann var mjög skýr. Ég vil spyrja alla stuðningsmenn eða fyrrum leikmenn: Hvað segir þú við leikmann sem vill ekki vera hérna?" sagði Benítez á fréttamannafundi.

„Ég hef spjallað nokkrum sinnum við hann og hann hefur sagt sína hugsun."

Digne gæti farið til Newcastle í skiptum fyrir Sean Longstaff en Benítez vill fá miðjumanninn á Goodison Park. Longstaff lék undir stjórn Benítez hjá Newcastle.
Athugasemdir
banner