Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. janúar 2022 21:30
Victor Pálsson
Martial hefur engan áhuga á Newcastle
Mynd: Getty Images
Anthony Martial, leikmaður Manchester United, hefur engan áhuga á að ganga í raðir Newcastle í janúarglugganum sem er nú opinn.

Þetta kemur fram í frétt Times en Martial er á förum frá Man Utd og hefur Ralf Rangnick, stjóri liðsins, staðfest að það sé hans vilji.

Martial er 26 ára gamall sóknarmaður og hefur verið orðaður við Newcastle sem fékk inn nýja eigendur í fyrra sem ætla að rífa liðið upp töfluna.

Martial kom til Manchester frá Mónakó árið 2015 en hefur í raun aldrei náð að standast þær væntingar sem voru gerðar til hans.

Martial telur að það séu mun betri möguleikar í boði en Newcastle en Sevilla er eitt af þeim félögum sem eru talin áhugasöm.
Athugasemdir
banner
banner