Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 07. febrúar 2021 22:30
Victor Pálsson
Zlatan kominn með 500 mörk
Zlatan Ibrahimovic var sjóðandi heitur í dag er AC Milan spilaði við Crotone í ítölsku úrvalsdeildinni.

Sigur Milan var aldrei í neinni hættu í dag en Crotone er á botni deildarinnar og hefur lítið gert í vetur.

Zlatan skoraði fyrstu tvö mörk Milan í leiknum áður en Ante Rebic gerði slíkt hið sama og skoraði sjálfur tvennu.

Zlatan var að skora sitt 500. mark fyrir félagslið á ferlinum í dag og er nú kominn með 501 eftir seinna markið.

Svíinn stóri og stæðilegi er 39 ára gamall og er að leika sitt 24. tímabil sem atvinnumaður.

Hann hefur spilað fyrir níu mismunandi lið síðan hann yfirgaf Malmö árið 1999. Seinna mark hans í dag var það 83. í treyju Milan.
Athugasemdir
banner