Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, skipulagði æfingu með þremur af leikmönnum sínum að sögn Evening Standard.
Mourinho var myndaður í Barnet ásamt þremur af leikmönnum sínum, þeim Davinson Sanchez, Tanguy Ndombele og Ryan Sessegnon. Allir búa þeir á svæðinu.
Útgöngubann er í Bretlandi og þurfa alltaf að vera tveir metrar á milli manna. Einnig er sú regla í gildi að aðeins má hreyfa sig utandyra með einum öðrum einstaklingi frá sínu eigin heimili.
Sagt er að hátt settir aðilar hjá Tottenham hafi verið ósáttir við ákvörðun Mourinho og að Portúgalinn hafi fengið tiltal.
Tottenham, sem var í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar áður en hlé var gert á henni vegna kórónuveirunnar, hefur sent starfsfólk í leyfi og ætlar að nota neyðarúrræði stjórnvalda sem segir til um að Tottenham borgi 20% af launum starfsmanna og hin 80% verði greidd af ríkinu.
#thfc Mourinho believed to have organised a "training session" with Ndombele, Sessegnon & Sanchez on Hadley Common in Barnet today. All live locally. Everyone involved has been reminded about social distancing guidelines. Safe to say club is v unimpressed.
— Dan Kilpatrick (@Dan_KP) April 7, 2020
Athugasemdir