Josh Maja. Hann raðaði inn mörkunum með Sunderland í annarri þáttarröðinni af Sunderland Til' I Die.
Sóknarmaðurinn Josh Maja kom ekki vel út utan vallar í annarri þáttarröðinni af Sunderland Til' I Die sem er sýnd á Netflix. Maja raðaði inn mörkunum innan vallar en utan vallar sagðist hann alltaf ætla að skrifa undir nýjan samning sem hann á endanum gerði svo ekki.
Maja fór til Bordeaux í Frakklandi á síðasta ári eftir að hafa skorað 15 mörk í 24 leikjum með Sunderland í C-deildinni á Englandi.
Í þáttunum sagði Steward Donald, stjórnarformaður Sunderland, að hann hefði ekki samþykkt neitt áður en Maja fór til Frakklands, til Bordeaux.
Daily Mail fjallar hins vegar um það að Bordeaux hafi fyrst ætlað sér að semja við Maja á samningi fyrir leiktíðina sem er í gangi núna. Samningur hans var að enda og gat Bordeaux því fengið hann án þess að ræða við Sunderland. Þá hefði franska félagið aðeins þurfta að borga 500 þúsund pund í uppeldisbætur fyrir Maja.
Sunderland fékk hins vegar umboðsmenn Maja til að tala við Bordeaux um að kaupa Maja á 1,5 milljónir punda svo að enska félagið myndi að minnsta kosti fá eitthvað aðeins meira fyrir hann. Það tókst og var Maja seldur fyrir umrædda upphæð.
Þannig er mál með vexti að í staðinn fyrir að bjóða leikmanninum samning um sumarið 2018 þá ákvað félagið að bíða og sjá hvernig málin þróuðust. Maja reimaði svo sannarlega á sig markaskóna í C-deildinni og fljótlega missti Sunderland valdastöðuna.
Sunderland gerði honum fyrst tilboð í október, þegar hann hafði skorað níu mörk á tímabilinu. Tilboðið var upp á 2750 pund á viku og það hefði hækkað í 4750 pund á viku ef félagið kæmist upp í Championship-deildina. Ekki eins mikilvægir leikmenn og Maja voru að fá hærri laun en það.
Sunderland gerði honum tvö önnur tilboð og var það síðasta upp á 5 þúsund pund á viku sem myndi hækka í 7500 pund ef félagið kæmist upp í Championship-deildina. Maja vildi vera áfram hjá Sunderland og báðu umboðsmenn hans um 8 þúsund pund á viku og riftunarverð upp á 3,5 milljónir punda. Sunderland vildi hins vegar ekki fara hærra og gáfu þeir umboðsmönnum hans grænt ljós á að finna nýtt félag fyrir leikmanninn í janúar 2019.
Hinn 21 árs gamli Maja kom ekki vel út í þáttunum og var ítrekað talað um að umboðsmenn hans væru að reyna að koma honum í burtu til að græða pening. Í grein Daily Mail kemur hins vegar fram að sóknarmaðurinn hafi verið ánægður hjá félaginu og langaði að vera áfram, en samningstilboðin sem hann fékk voru ekki ásættanleg miðað við hvernig hann var að standa sig innan vallar.
Sunderland hefði að minnsta kosti getað haldið honum út tímabilið og Maja hefði þá mögulega hjálpað þeim að komast upp, en í staðinn keypti félagið Will Grigg á fjórar milljónir punda á gluggadegi í janúar. „Will Grigg's on fire - Your defence is terrified," segir í laginu fræga um norður-írska framherjann. Hann hefur hins vegar ekki verið 'on fire' frá því hann gekk í raðir Sunderland
Á meðan er Maja að standa sig mjög vel í Frakklandi. Áður en hlé var gert á franska fótboltanum vegna kórónuveirunnar þá hafði Maja skorað átta mörk í 17 keppnisleikjum á þessu tímabili. Will Grigg hefur skorað eitt mark í 20 deildarleikjum og er Sunderland í sjöunda sæti í C-deildarinnar og í hættu á að spila annað tímabil þar, en það veltur einnig á því hvort að hægt að klára þetta tímabil eða ekki. Það er óljóst vegna kórónuveirufaraldursins.
Greint Daily Mail má lesa í heild sinni hérna.
Sjá einnig:
Sunderland 'Til I Die - Hvar eru þeir núna?
REVEALED: The true story behind Josh Maja's move in Netflix's Sunderland 'Til I Die https://t.co/cbmFdZC4sX
— MailOnline Sport (@MailSport) April 7, 2020
Athugasemdir