Kompany vill taka við Bayern - Isak og Brobbey efstir á blaði Arsenal - McKenna orðaður við Chelsea og Man Utd
banner
föstudagur 17. maí
Mjólkurbikar karla
mánudagur 13. maí
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 7. maí
Lengjudeild kvenna
mánudagur 6. maí
Besta-deild karla
Lengjudeild kvenna
laugardagur 4. maí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
miðvikudagur 1. maí
Lengjudeild karla
mánudagur 29. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 23. apríl
þriðjudagur 21. maí
Vináttulandsleikur
North Macedonia U-19 1 - 3 Montenegro U-19
banner
fös 07.apr 2023 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 1. sæti: Breiðablik

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik muni verja Íslandsmeistaratitil sinn í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Níu af spámönnunum voru með Blika í efsta sæti, tveir voru með þá í öðru og einn í þriðja.

Spáin:
1. Breiðablik, 140 stig
2. Valur, 131 stig
3. Víkingur, 124 stig
4. KA, 106 stig
5. KR, 91 stig
6. Stjarnan, 84 stig
7. FH, 72 stig
8. ÍBV, 66 stig
9. Fram, 47 stig
10. Keflavík, 32 stig
11. Fylkir, 26 stig
12. HK, 17 stig

Um liðið: Breiðabliksliðið hefur verið í svolítilli mótun undanfarin ár og í fyrra sprakk liðið algjörlega út; þeir voru langbestir. Kópavogsfélagið varð meistari með algjörum yfirburðum og átti ekkert annað lið möguleika. Blikar settu tóninn í byrjun með því að vinna hvern leikinn á fætur öðrum. Þeir eru líklegastir til afreka í sumar og eru eflaust hungraðir í að vinna þann stóra aftur. Þeir eru nú þegar búnir að vinna einn titil í vetur og spurning hvort fleiri bætist við í sumar.



Þjálfarinn - Óskar Hrafn Þorvaldsson: Er búinn að sanna það að hann er einn allra besti þjálfari landsins. Var mjög beittur fjölmiðlamaður og frábær fótboltasérfræðingur áður en hann tók við meistaraflokki karla hjá Gróttu fyrir tímabilið 2018. Hann stýrði Gróttu upp úr 2. deild og svo beint upp úr Lengjudeildinni áður en hann tók við Breiðabliki. Hann vann svo sinn fyrsta stóra titil með Blikum á síðustu leiktíð. Hefur verið orðaður við mörg störf erlendis en tekur allavega eitt tímabil í viðbót í Kópavoginum.


Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Ingólf Sigurðsson til að rýna í styrkleika, veikleika og margt annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Þeir sjá þó ekki að skrifa um leikvöllinn hér að neðan. Einar, fyrrum aðstoðarþjálfari Víkings, fer yfir það helsta hjá Breiðabliki.

Styrkleikar: Óskar Hrafn er þeirra helsti styrkleiki. Ótrúlegur leiðtogi sem nær því besta út úr sínu þjálfarateymi og sínum leikmönnum. Hann er nánast eins og forstöðumaður í sértrúarsöfnuði í Kópavoginum, allir í og í kringum liðið elta Óskar og hans orð í einu og öllu sem skilaði frábærum árangri í fyrra og mun halda áfram að skila árangri.

Veikleikar: Mögulega er það veikleiki hversu stór hópurinn þeirra er. Það gæti þýtt að það næst ekki stöðugleiki í liðið og það tekur þá lengri tíma að finna sitt byrjunarlið. Blikar eiga það líka til að vera ekki í nógu og góðu jafnvægi þegar þeir sækja og gefa þannig andstæðingum færi á skyndisóknum.


Fagna Íslandsmeistaratitlinum í fyrra.

Spurningarnar: Óskar er klókur í að finna leikmenn sem hafa ekki verið að ná sínu besta fram og hefur náð því besta úr þeim. Því er stærsta spurningin hvaða óvænti leikmaður springur út hjá þeim í sumar?

Þrír lykilmenn: Damir Muminovic er enn allra besti hafsent deildarinnar og sterkur leiðtogi. Gísli Eyjólfs hatar að tapa og er tilbúinn að gera allt til að vinna, þess fyrir utan er hann frábær alhliða miðjumaður. Höskuldur Gunnlaugsson getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Stendur alltaf sína plikt hvar sem hann er látinn spila og er frábær fyrirmynd.


Damir Muminovic.

Leikmaður sem á að fylgjast með: Stefán Ingi Sigurðarson er sá leikmaður í deildinni sem ég er hvað spenntastur fyrir í sumar. Ég sá mikið af honum í fyrra þegar hann var í HK og heillaðist mjög. Hann er stór, sterkur, þokkalega fljótur, með góðan fót og flottar staðsetningar. Hann er líka duglegur í varnarleik sem gerir hann nánast að fullkomnum framherja fyrir leikstíl Breiðabliks.


Stefán Ingi Sigurðarson.

Völlurinn: Kópavogsvöllur var besti heimavöllur deildarinnar á síaðsta ári en Blikar voru illviðráðanlegir á gervigrasinu í fyrra. Þeir spiluðu 14 leiki þar og unnu tólf; töpuðu aðeins einum og gerðu eitt jafntefli. Það getur myndast skemmtileg stemning á Kópavogsvelli og má búast við rosalegum leik þar í fyrstu umferð er HK kemur í heimsókn.


Kópavogsvöllur.

Komnir
Alex Freyr Elísson frá Fram
Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá KR
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Horsens (var á láni hjá Val)
Ágúst Orri Þorsteinsson frá Malmö
Eyþór Aron Wöhler frá ÍA
Klæmint Olsen á láni frá NSÍ Runavík
Oliver Stefánsson frá Norrköping (var á láni hjá ÍA)
Patrik Johannesen frá Keflavík
Stefán Ingi Sigurðarson frá HK (var á láni)

Farnir
Dagur Dan Þórhallsson til Orlando
Elfar Freyr Helgason í Val
Ísak Snær Þorvaldsson til Rosenborg
Mikkel Qvist
Pétur Theodór Árnason á láni til Gróttu
Sölvi Snær Guðbjargarson í frí
Omar Sowe til Leiknis (var á láni frá NY Red Bulls)
Adam Örn Arnarson í Fram (var á láni hjá Leikni)
Benedikt Warén í Vestra (var á láni hjá ÍA)

Dómur Einars fyrir gluggann: Þeir hafa verið að taka inn öfluga leikmenn í staðinn fyrir þá sem fóru en það er erfitt þegar þú missir tvo af fimm bestu leikmönnum síðasta Íslandsmóts. Hópurinn virðist vera sterkari en byrjunarliðið veikara - 8.


Ísak Snær var bestur í fyrra en hann er farinn til Rosenborg í Noregi.

Líklegt byrjunarlið:


Leikmannalisti:
1. Anton Ari Einarsson (m)
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Alex Freyr Elísson
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Höskuldur Gunnlaugsson
8. Viktor Karl Einarsson
9. Patrik Johannesen
10. Kristinn Steindórsson
11. Gísli Eyjólfsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
14. Jason Daði Svanþórsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
16. Dagur Örn Fjeldsted
18. Eyþór Aron Wöhler
20. Klæmint Andrasson Olsen
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Stefán Ingi Sigurðsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Ásgeir Helgi Orrason
28. Oliver Stefánsson
30. Andri Rafn Yeoman

Fyrstu fimm leikir Breiðabliks:
10. apríl, Breiðablik - HK (Kópavogsvöllur)
16. apríl, Valur - Breiðablik (Origo völlurinn)
23. apríl, ÍBV - Breiðablik (Hásteinsvöllur)
28. apríl, Breiðablik - Fram (Kópavogsvöllur)
4. maí, Stjarnan - Breiðablik (Samsungvöllurinn)

Í besta falli og versta falli: Í besta falli fyrsta, ef allt er eðlilegt þá hlaupa þeir með mótið. Í versta falli fjórða sæti ef allt fer í skrúfuna og Evrópuálagið verður of mikið.

Á eftir birtist Breiðabliks hlaðvarp hér á síðunni. Endilega fylgist með því.

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Arnar Daði Arnarsson, Arnar Laufdal, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Tómas Þór Þórðarson.
Athugasemdir
banner
banner