Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho slapp með skrekkinn í 1-1 jafntefli Liverpool og Tottenham á Anfield í kvöld eftir að hann braut á Son Heung-Min.
Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum kom upp ansi umdeilt atvik er brasilíski miðjumaðurinn rétti út olnbogann og hæfði andlit Son.
Fabinho fékk einungis gult spjald fyrir þetta atvik en Michael Oliver, dómari leiksins, hefði hæglega getað gefið honum rautt.
Þegar atvikið er skoðað í endursýningunni virðist brotið heldur gróft en það má sjá hér fyrir neðan.
You not allowed to get VAR red cards at Anfield, the officials are just too scared to give them. pic.twitter.com/jPo3jexMy8
— John Merro (@johnmerro1) May 7, 2022
Athugasemdir