Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 07. júlí 2022 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Joe Gomez gerir nýjan samning við Liverpool
Gomez faðmar hér Jurgen Klopp, stjóra Liverpool.
Gomez faðmar hér Jurgen Klopp, stjóra Liverpool.
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Joe Gomez er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Liverpool.

Hinn 25 ára gamli Gomez, sem kom til Liverpool árið 2015, er núna samningsbundinn félaginu til 2027.

Gomez er alls búinn að spila 142 leiki fyrir Liverpool en hann hefur átt í basli með hné og ökklameiðsli. Hann var ekki í mjög stóru hlutverki á síðustu leiktíð en er tilbúinn að vera áfram í herbúðum félagsins.

„Ég er enn ungur og bestu árin eru framundan,." sagði Gomez þegar hann krotaði undir.

„Ég á mikið eftir ólært og mér líður best með að gera það hérna hjá þessum stjóra, þessu þjálfarateymi og þessum liðsfélögum."
Athugasemdir
banner
banner
banner