Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. ágúst 2020 20:45
Aksentije Milisic
Ferdinand: Verður að koma yfirlýsing frá Bale eða Real Madrid
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand hefur skorað á Gareth Bale og Real Madrid að finna lausn á stöðu hans hjá félaginu en Bale neitaði að ferðast í leikinn gegn Manchester City í kvöld í Meistaradeildinni.

Bale byrjaði einungis 12 leiki hjá Real Madrid í deildinni á þessari leiktíð og kom aðeins við sögu í tveimur af síðustu 14 leikjum í La Liga.

Bale sást spila golf einungis nokkrum klukkustundum fyrir leikinn í dag en Zinedine Zidane sagði að hann vildi ekki spila leikinn. Bale var viss um að hann fengi ekki að spila eina einustu sekúndu í leiknum.

„Við erum ekki að sjá leikmann með magnaða hæfileika á vellinum. Bale hefur unnið ótrúlegt magn af titlum," sagði Ferdinand.

„Við viljum sjá hann á vellinum. Hann getur gert magnaða hluti á mikilvægum andartökum og skorað glæsileg mörk. Það er pirrandi að við erum ekki að sjá hann spila neitt."

„Maður vill sjá hann eða klúbbinn koma með yfirlýsingu. Hann verður að koma fram og segja sína hlið málsins. Hann verður annaðhvort að fá að fara frá félaginu eða allavega komast á lán eitthvert annað."
Athugasemdir
banner
banner
banner