sun 07. ágúst 2022 14:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið West Ham og Manchester City: Haaland byrjar
Mynd: EPA

West Ham og Manchester City mætast í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Byrjunarlið liðanna eru komin í hús.


Nayef Aguerd nýr leikmaður West Ham meiddist á undirbúningstímabilinu og er ekki klár í slaginn næstu vikurnar. Þá er Gianluca Scamacca ekki klár í að byrja en hann er á bekknum.

Michail Antonio leiðir línuna hjá West Ham og það lítur út fyrir að Aaron Cresswell sé með Kurt Zouma í miðverðinum.

Erling Haaland er í fremstu víglínu hjá Man City og Nathan Ake er með Ruben Dias í miðverðinum.

West Ham: Fabianski, Johnson, Cresswell, Zouma, Coufal, Soucek, Rice, Lanzini, Fornals, Bowen, Antonio

Man City: Ederson, Walker, Dias, Ake, Cancelo, Gundogan, Rodri, De Bruyne, Grealish, Haaland, Foden


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner