Fotbolti.net
07.09.22 - 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gefa allan aðgangseyri til aðstandenda harmleiksins á Blönduósi

Gefa allan aðgangseyri til aðstandenda harmleiksins á Blönduósi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Augnablik og Kormákur/Hvöt mætast í 3. deild karla á laugardag.

Augnablik stendur í söfnun í tengslum við leikinn og ætlar félagið að gefa allan aðgengseyri sem safnast til aðstandenda harmleiksins sem átti sér stað á Blönduósi í síðasta mánuði.
„Kormákur/Hvöt kemur í heimsókn til okkar næstu helgi.
Rukkað verður 1500kr inn á leikinn og mun aðgangseyrinn renna óskiptur til aðstandenda hins sorglega atburðs síðasta mánaðar. Viljum sjá sem flesta á laugardaginn kl. 14 í Fífunni!💚"
segir í færslu Augnabliks.

Ef þú kemst ekki á leikinn en vilt leggja málefninu lið þá geturu gert það með því að leggja inn á reikning.

Reikningsnúmer: 0536-26-014085
Kennitala: 660195-2899

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.