Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 07. október 2019 16:23
Elvar Geir Magnússon
Liepaja, Lettlandi
Jón Þór hefur úr fullum hóp að velja - Allar æfðu
Icelandair
Rétt fyrir landsliðsæfingu dagsins.
Rétt fyrir landsliðsæfingu dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í þessum skrifuðu orðum var íslenska kvennalandsliðið að klára æfingu í Lettlandi fyrir leikinn gegn heimakonum sem verður á morgun.

Það hefur rignt í Liepaja í dag og til að hlífa keppnisvellinum var æft á öðrum velli í nágrenninu.

Allir leikmenn Íslands æfðu í dag og Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari hefur því úr fullum hóp að velja.

„Þær eru allar klárar og það er virkilega þétt og góð stemning í hópnum. Það eru allir heilir og ferskir," segir Jón Þór.

„Ég hef ekki nokkra trú á öðru en að við tökum þrjú stig á morgun og höldum áfram góðri byrjun okkar í þessum riðli. Við erum með fullt hús og ætlum okkur að klára þennan riðil með fullt hús stiga."

„Ég er ánægður með að ekki var æft á keppnisvellinum í dag því hann hefði aldrei ráðið við það að bæði lið væru að æfa á honum í dag."

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók á æfingunni í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner