Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 07. nóvember 2019 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Son sendi Gomes skilaboð: Líður enn mjög, mjög illa
Son Heung-min.
Son Heung-min.
Mynd: Getty Images
Son Heung-min, leikmaður Tottenham, segist hafa skipst á skilaboðum við Andre Gomes, miðjumann Everton, eftir meiðsli þess síðarnefnda síðastliðinn sunnudag.

Son braut á Gomes í leik Everton og Tottenham. Gomes lenti á Serge Aurier, bakverði Tottenham, með þeim afleiðingum að hann meiddist illa.

Gomes fór í aðgerð í vikunni en hún gekk frábærlega og leikmaðurinn gæti náð að spila meira á þessu tímabili.

Son fékk rautt spjald fyrir brotið, sem síðar var dregið til baka.

Son spilaði gegn Rauðu stjörnunni í Meistaradeildinni í gær og skoraði tvisvar. Hann fagnaði fyrra markinu með því að biðja Gomes afsökunar.

Eftir leikinn sagði hann svo: „Ég sendi honum skilaboð áður en við flugum hingað og hann sendi mér skilaboð til baka. Mér líður enn mjög, mjög illa yfir þessu."

„Síðustu dagar hafa verið mjög erfiðir. Ég sendi honum skilaboð og óskaði honum þess besta og bað hann, fjölskyldu hans og liðsfélaga afsökunar."

Sjá einnig:
Andre Gomes þakkar fyrir stuðninginn
Athugasemdir
banner
banner
banner