Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. nóvember 2019 20:30
Aksentije Milisic
Andre Gomes þakkar fyrir stuðninginn
Mynd: Getty Images
Andre Gomes, miðjumaður Everton, birti í kvöld skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hann þakkar öllum fyrir kveðjurnar á síðustu dögum.

Eins og flestir vita meiddist Gomes illa í leiknum gegn Tottenham á sunnudaginn síðasta með þeim afleiðingum að hann ökklabrotnaði.

„Sæl öll. Eins og þið vitið nú þegar þá gekk aðgerðin mjög vel. Ég er núna kominn heim til fjölskyldunar minnar. Ég vil þakka öllum fyrir stuðninginn, skilaboðin og alla jákvæðu orkuna sem ég hef fengið. Takk fyrir," sagði Gomes í myndbandinu.

Búist er við því að Gomes gæti verið frá í allt að heilt ár.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan:


Athugasemdir
banner
banner
banner