Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. nóvember 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19 mætir Svíþjóð í Egilshöll í kvöld
Linda Líf skoraði á þriðjudaginn.
Linda Líf skoraði á þriðjudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Íslenska U19 ára landslið kvenna mætir Svíþjóð í Egilshöll klukkan 19:15 í kvöld.

Þetta er annar leikur liðanna í vikunni en á þriðjudag mættust liðin í Fífunni. Sá leikur endaði 3:0 fyrir íslenska liðinu.

Þær Hildur Þóra Hákonardóttir, Linda Líf Boama og Karen María Sigurgeirsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins og komu þau öll í fyrri hálfleik.

Smelltu hér til að sjá landsliðshópinn sem valinn var fyrir leikina tvo. Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins.

U19 kvenna - Vináttulandsleikur
19:15 Ísland - Svíþjóð (Egilshöll)
Athugasemdir
banner