Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. nóvember 2019 20:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U19 kvenna með öruggan sigur á Svíþjóð
Linda Líf gerði annað mark Íslands.
Linda Líf gerði annað mark Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland 3 - 0 Svíþjóð
1-0 Hildur Þóra Hákonardóttir ('16)
2-0 Linda Líf Boama ('25)
3-0 Karen María Sigurgeirsdóttir ('35)

Landslið kvenna skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann góðan sigur á Svíþjóð í vináttulandsleik í Fífunni í kvöld.

Hildur Þóra Hákonardóttir kom Íslandi yfir á 16. mínútu með skallamarki eftir hornspyrnu. Tæpum tíu mínútum síðar bætti Linda Líf Boama við marki þegar hún slapp ein í gegnum sænsku vörnina.

Karen María Sigurgeirsdóttir gerði þriðja mark Ísland þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Staðan í hálfleik 3-0 fyrir Ísland.

Það voru ekki fleiri mörk skoruð og lokatölur 3-0 fyrir Ísland.

Stelpurnar mæta Svíþjóð svo aftur á fimmtudaginn. Sá leikur fer fram í Egilshöll og hefst kl. 19:15.

Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Barbára Sól Gísladóttir
Hildur Þóra Hákonardóttir
Arna Eiríksdóttir (F)
Íris Una Þórðardóttir
Eva Rut Ásþórsdóttir
Ída Marín Hermannsdóttir
Clara Sigurðardóttir
Karen María Sigurgeirsdóttir
Birta Georgsdóttir
Linda Líf Boama


Athugasemdir
banner
banner
banner