Óvíst hvað BBB gerir næst - Þéttasti hópurinn á ferlinum

Hvort maður eigi að segja þetta gott; upplifa eitthvað nýtt, fara í fjallaklifur eða fallhlífastökk

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Ég er alveg viss um að ef ég vildi þá gæti ég haldið áfram

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ég hugsa að hvaða leikmaður sem er hefði getað tekið þetta á sig

Björn Berg Bryde verður samningslaus hjá Stjörnunni um mánaðamótin. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 2020 og í sumar kom hann við sögu í 16 leikjum í deild og bikar. Fótbolti.net ræddi við kappann í dag.
„Ég er voða rólegur, er í fríi og er bara að vega og meta stöðuna. Það er eitt og annað sem er á borðinu, en ekkert eitthvað sem er komið á það stig að ég fari að tala eitthvað um það," sagði Björn.
Hann er 31 árs og fékk spurninguna hvort það kæmi til greina að leggja skóna á hilluna.
„Ég veit það ekki, það er líka eitthvað sem ég er að spá í, hvort maður eigi að segja þetta gott; upplifa eitthvað nýtt, fara í fjallaklifur eða fallhlífastökk."
Útilokar ekki þjálfun
En að verða aðstoðarþjálfari?
„Já já, það er líka eitthvað sem mætti alveg skoða. Ef það kemur eitthvað upp þá er maður alltaf tilbúinn að skoða það; hvort sem maður verður leikmaður, þjálfari eða bara hætti þessu. Það er ennþá óljóst."
Skipti ekki öllu máli hvort maður spilaði eða ekki
Varstu ánægður með þann spiltíma sem þú fékkst í sumar?
„Ekkert ánægður, en hópurinn í Stjörnunni er áhugaverður. Hann er töluvert þéttari en maður hefur verið í og allir einhvern veginn róa í sömu átt. Þá skipti ekki öllu máli alltaf hvort maður spilaði eða ekki, manni fannst alltaf eins og maður ætti hlutverk þó að maður væri ekki að spila; eins og að vera þjálfari í einn leik og annað."
Hefði mátt sinna skrokknum betur
Hvernig er skrokkurinn?
„Ég er alveg viss um að ef ég vildi þá gæti ég haldið áfram, en hann er ekki eins góður og hann var. Maður hefur svolítið verið að finna fyrir þessu undanfarin ár, hefði mátt sinna þessu aðeins betur."
Ertu svekktur út í sjálfan þig varðandi skrokkinn?
„Miðað við líkamsbygginguna á mér þá er ég ekkert hissa að hann sé aðeins farinn að bregðast mér. Það má alltaf hugsa betur um sig, en þýðir ekkert að grenja yfir því núna. Kannski er maður of langt leiddur og búinn að skemma þetta, ég veit það ekki."
Hvaða leikmaður sem er hefði getað tekið hlutverkið
Björn kom inn á leikinn gegn KA þar sem hann var þjálfari liðsins. Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var að eignast barn og komst því ekki með norður. Hvernig leist Birni á að þjálfa liðið þegar það kom upp?
„Það var löngu ljóst að Jökull var að fara eignast barn og það gæti lent hvenær sem er. Það þyrfti því einhver að stíga upp. Það var mikið rætt og ritað um þetta, hvort þetta væri fáránleg ákvörðun og allt það. En, eins og ég sagði áðan, þetta er það þéttur hópur að ég hugsa að hvaða leikmaður sem er hefði getað tekið þetta á sig. Manni leið eins og maður væri þjálfari í þessu hlutverki. Jökull bara spurði mig hvort ég hefði áhuga á að taka þetta ef þessi staða kæmi upp. Ég sagði bara strax já."
Þú hefur ekkert hugsað að þú værir kominn þetta aftarlega í röðina sem leikmaður?
„Nei. Það var aldrei málið að hann væri að velja þann sem hann vildi síst spila til að þjálfa liðið. En af hverju það var ég frekar en annar, það er eitthvað sem Jökull þyrfti að svara," sagði Björn að lokum.

TENGT EFNI
Jökull: Munum aldrei vita hvort þetta voru mistök eða ekki

TENGT EFNI
Björn Berg hafði gaman af þjálfarahlutverkinu: Fáum sennilega ekki tækifæri á þessu aftur