07.12.20 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Lilleström upp í úrvalsdeild - Skagamennirnir ánægðir

Arnór Smárason

Mynd: Getty Images

Arnór Smárason

Mynd: Getty Images
Lilleström tryggði sér í dag sæti í norsku úrvalsdeildinni á næsta ári án þess þó að spila leik.
1-1 jafntefli gegn Ham Kam í gær fór langt með að tryggja sæti Lilleström.
Sogndal tapaði 2-0 gegn Jerv í dag og þar með var sæti Lilleström í úrvalsdeild tryggt. Lilleström er sex stigum á undan Sogndal fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Lilleström er í 2. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Tromsö.
Arnór Smárason, Björn Bergmann Sigurðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson spila allir með Lilleström en þeir eru allir uppaldir hjá ÍA.
Eins og sjá má á mynd Arnórs voru þeir félagar sáttir þegar sætið í úrvalsdeildinni var staðfest í dag.

💛🖤🔝🔝🔝 pic.twitter.com/gpcnT09uNs
— Arnór Smárason (@arnorsmaRa) December 7, 2020