Markvörðurinn Tim Krul hefur staðfest að hann sé meðal þriggja hjá Championship-liðinu Norwich sem hafa greinst með Covid-19.
Hollenski landsliðsmaðurinn er kominn í einangrun og spilar ekki með í bikarleik gegn Coventry á morgun.
Hollenski landsliðsmaðurinn er kominn í einangrun og spilar ekki með í bikarleik gegn Coventry á morgun.
Krul er 32 ára og hefur spilað fjórtán leiki fyrir Norwich í Championship-deildinni á þessu tímabili.
Norwich trónir á toppi deildarinnar en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir