Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. febrúar 2023 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lloris frá í um tvo mánuði - Forster kemur inn í staðinn
Hugo Lloris.
Hugo Lloris.
Mynd: EPA
Hugo Lloris, markvörður Tottenham, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Hann varð fyrir hnémeiðslum í 1-0 sigrinum gegn Manchester City síðasta sunnudag. Núna er komið í ljós að hann verður frá í 6-8 vikur. Hann mun því snúa aftur seint í mars eða í byrjun apríl.

Fraser Forster er varamarkvörður Tottenham og hann fær núna tækifæri til að sýna sig og sanna.

Forster var fenginn til Tottenham síðasta sumar eftir að hafa leikið með Southampton um langt skeið. Hann á að baki sex A-landsleiki fyrir England.

Tottenham er sem stendur í fimmta sæti og er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner