Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 08. september 2022 16:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea greiðir rúmlega 20 milljónir punda fyrir Potter og hans menn
Mynd: EPA
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá greiðir Chelsea Brighton 21,5 milljónir punda fyrir að fá Graham Potter í sínar raðir og aðstoðarmennina þrjá sem honum fylgja.

Chelsea tilkynnti fyrr í dag að Potter hefði skrifað undir fimm ára samning við félagið. Chelsea var í stjóraleit eftir að Thomas Tuchel var rekinn í gærmorgun.

Kyle Macaulay er einn af mönnum Potter og er hann sérfræðingur í félagsskiptum - í því að fá réttu leikmennina til þeirra félagsins þar sem hann er við störf. Billy Reid og Bjorn Hamberg eru aðstoðarmenn Potter og góðir vinir hans, hann fær þá einnig með sér.

Thomas Tuchel og hans menn eru sagðir fá 15 milljónir punda fyrir brottreksturinn frá Chelsea. Heildarupphæðin er því 36,5 milljónir punda ef þessar tölur sem Sky Sports segja frá eru réttar.
Athugasemdir
banner
banner
banner