Fotbolti.net
08.09.22 - 22:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Grét þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal

Marquinhos

Marquinhos

Canon

Mynd: EPA

Hinn 19 ára gamli Brasilíumaður, Marquinhos, lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Arsenal í kvöld þegar liðið vann 2-1 sigur á Zurich í Evrópudeildinni.

Hann var allt í öllu og skoraði fyrsta markið í leiknum. Zurich jafnaði metin en Marquinhos lagði upp sigurmarkið á Eddie Nketiah.

Marquinhos kom Arsenal yfir eftir rúmlega stundarfjórðung en hann brast í grát í fagnaðarlátunum. Tilfinningaþrungin stund að spila sinn fyrsta leik fyrir Arsenal.

Hann gekk til liðs við félagið í sumar frá Sao Paulo í heimalandi sínu en hann hefur spilað tvo leiki fyrir varalið Arsenal og skorað þrjú mörk.

Sjáðu markið.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.