Fotbolti.net
08.11.20 - 15:48
Ívan Guðjón Baldursson

Svíþjóð: Aron skoraði í tapi - AIK sigraði

Svíþjóð: Aron skoraði í tapi - AIK sigraði
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Jóhannsson var í byrjunarliði Hammarby og skoraði úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé.
Hammarby fékk skell gegn Varberg í dag en staðan var 2-1 fyrir heimamenn í Varberg í leikhlé.

Hammarby tók áhættur á lokakafla leiksins, í stöðunni 3-2, og náðu heimamenn að nýta sér það og unnu að lokum 5-2.

Tapið kemur sér illa fyrir Hammarby sem er fjórum stigum frá Evrópusæti þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu.

Kolbeinn Sigþórsson spilaði þá uppbótartímann í 0-1 sigri AIK gegn Djurgården. AIK er sex stigum frá Evrópusæti eftir sigurinn.

Varberg 5 - 2 Hammarby
1-0 A. Selmani ('8)
2-0 A. Selmani ('33, víti)
2-1 Aron Jóhannsson ('45, víti)
3-1 R. Book ('53)
3-2 G. Ludwigson ('54)
4-2 A. Ejupi ('81)
5-2 A. Selmani ('85)

Djurgården 0 - 1 AIK
0-1 N. Bahoui ('75)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.