Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 09. janúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mail: Allegri hefur auga á sjórastarfinu hjá United
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Daily Mail hefur Max Allegri, fyrrum stjóri Juventus, augastað á stjórastarfinu hjá Manchester United.

Fari svo að United losi sig við Ole Gunnar Solskjær er Allegri tilbúinn að taka við stjórnartaumunum á Old Trafford.

Allegri hefur verið í hléi frá þjálfun eftir að hafa hætt hjá Juventus síðastliðið sumar.

Sögusagnir segja að hann hafi viljandi dregið hléið á langinn og vonast eftir að starfið hjá United myndi losna.
Athugasemdir
banner
banner