Alejandro Manuel Muñoz Caballe verður áfram á Grenivík og tekur því slaginn með Magna í annari deildinni í sumar.
Jandro, eins og hann er kallaður, kom frá Spáni og spilaði 7 leiki fyrir Magna í Lengjudeildinni en Magni féll á markatölu eftir að mótinu var slaufað.
Jandro þótti standa sig vel í þessum leikjum með Magna og hefur liðið náð samkomulagi við leikmanninn um að koma aftur í sumar.
Magni og Leiknir F féllu í 2. deildina en Kórdrengir og Selfoss fóru upp í Lengjudeildina. Magni tekur þátt í Kjarnafæðismótinu sem hefst á næstu dögum.
Athugasemdir