Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. janúar 2021 05:55
Aksentije Milisic
Spánn í dag: Toppliðin í eldlínunni
Suarez er markahæsti leikmaður deildarinnar.
Suarez er markahæsti leikmaður deildarinnar.
Mynd: Getty Images
Það er fjörugur dagur framundan í spænska boltanum og eiga stórliðin öll leik í dag.

Klukkan 13 er fyrsti leikur dagsins og þar er um hörku leik að ræða. Sevilla fær þá Real Sociedad í heimsókn en liðin eru í 5 og 6 sæti deildarinnar.

Atletico Madrid, sem situr á toppi deildarinnar, fær Athletic Bilbao í heimsókn og Barcelona heimsækir þá Granada. Með sigri getur Barcelona aðeins farið að banka í efstu liðin.

Kvöldleikurinn er svo viðureign Real Madrid og Osasuna. Real situr í öðru sæti deildarinnar á meðan Osasuna er í því næst neðsta.

Spánn: La Liga
13:00 Sevilla - Real Sociedad
15:15 Atletico Madrid - Athletic
17:30 Granada CF - Barcelona
20:00 Osasuna - Real Madrid
Athugasemdir
banner
banner