Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hefur verið kjörinn Mosfellingur ársins 2024.
Bæjarblaðið Mosfellingur stendur nú fyrir valinu á Mosfellingi ársins í 20. sinn.
Bæjarblaðið Mosfellingur stendur nú fyrir valinu á Mosfellingi ársins í 20. sinn.
Magnús Már afrekaði það á síðasta ári að koma karlaliði Aftureldingar upp í Bestu deildina. Þetta er í fysta skipti sem karlalið Aftureldingar spilar í deild þeirra bestu en síðasta haust átti knattspyrnudeildin 50 ára afmæli
„Ég er mjög þakklátur og snortinn að fá þessi verðlaun frá besta blaði í heimi. Fyrir mig persónulega eru þetta skemmtilegustu verðlaun sem ég hef fengið á ævinni,“ segir Magnús Már.
„Mér finnst þessi verðlaun vera fyrir alla sem hafa hjálpað Aftureldingu að komast upp í efstu deild. Leikmannahópurinn hefur lagt mikla vinnu á sig undanfarin ár og flestir leikmenn okkar eru uppaldir hjá Aftureldingu eða hafa verið mjög lengi hjá félaginu. Þjálfarateymið er frábært og má þar fyrstan nefna Enes Cogic aðstoðarþjálfara en hann hefur starfað með mér frá fyrsta degi og verið mér stoð og stytta."
„Sjálfboðaliðarnir og stjórn meistaraflokksráðs, með Gísla formann í broddi fylkingar, eiga ótrúlega mikinn þátt í þessu líka sem og auðvitað stuðningsmenn og styrktaraðilar. Þá vil ég nýta tækifærið og þakka fjölskyldu minni fyrir stuðninginn og sérstaklega foreldrum mínum og Önnu Guðrúnu eiginkonu minni.“
Maggi er uppalin Mosfellingur, hann byrjaði að æfa fótbolta með 6. flokki árið 1998 og spilaði upp alla yngri flokka í Aftureldingu og tók við sem aðalþjálfari liðsins 2019.
Þess má geta að móðir Magga, Hanna Símonardóttir, fékk verðlaunin árið 2011.
Athugasemdir