Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. mars 2023 18:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Manchester United: Óbreytt frá afhroðinu um helgina
Mynd: EPA

Manchester United fær Real Betis í heimsókn í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.


Það vekur athygli að Erik ten Hag ákveður að gera enga breytingu á liðinu sem steinlá gegn Liverpool á Anfield um helgina 7-0.

Bruno Fernandes fékk mikla gagnrýni eftir leikinn en Ten Hag heldur tryggð við hann og hann mun leiða liðið út á völl með fyrirliðabandið.

Eins og áður hefur komið fram er Paul Pogba ekki í leikmannahópi Juventus eftir að hafa mætt seint en Juventus fær Freiburg í heimsókn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner