Fotbolti.net
09.05.21 - 10:15
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Wolves og Brighton: Heldur Welbeck áfram að skora?

Byrjunarlið Wolves og Brighton: Heldur Welbeck áfram að skora?
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrsti leikur dagsins í enska boltanum er viðureign Wolves og Brighton.
Leikurinn fer fram á Molineux vellinum í 35. umferðinni en bæði lið eru í nokkuð þægilegum málum.

Wolves er um miðja deild eins og í allan vetur á meðan Brighton þarf að öllum líkindum einn sigurleik í viðbót til þess að gulltryggja sætið sitt í deildinni.

Nuno Espírito Santo, stjóri Úlfanna, gefur Fabio Silva tækifærið í framlínunni en hann hefur verið að pota inn eitthvað af mörkum undanfarið. Þá fær Morgan Gibbs-White einnig sénsinn sem og Vitinha.

Graham Potter, stjóri Brighton, heldur sig nokkurn veginn við sitt hefðbundna lið nema það að Alireza Jahanbakhsh fær sénsinn í byrjunarliðinu í dag.

Wolves: Patricio, Ait-Nouri, Kilman, Coady, Hoever, Neves, Moutinho, Podence, Vitinha, Gibbs-White, Fabio Silva.

Brighton: Sanchez, White, Webster, Dunk, Burn, Bissouma, Trossard, Gross, Jahanbakhsh, Maupay, Welbeck.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.