Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. maí 2021 11:10
Elvar Geir Magnússon
Réðust á dóttur þjálfarans
Gianluca Grassadonia.
Gianluca Grassadonia.
Mynd: Getty Images
Dóttir Gianluca Grassadonia, þjálfara Pescara í ítölsku B-deildinni, varð fyrir árás frá stuðningsmönnum Salernitana.

Pescara og Salernitana mætast á morgun í gríðarlega mikilvægum leik fyrir Salernitana sem getur tryggt sér beint sæti í A-deildinni en Pescara er þegar fallið niður í C-deildina.

Grassadonia býr í Salerno með fjölskyldu sinni og í gærkvöldi var dóttur hans hrint og sparkað í hana af nokkrum stuðningsmönnum Salernitana sem vildu skelfa Grassadonia fyrir leikinn á morgun.

Salernitana sendi frá sér yfirlýsingu þar sem árásin er fordæmd og sagt að ekkert réttlæti þessa hegðun, hún eigi ekkert tengt við íþróttir og gerendurnir séu glæpamenn.

Grassadonia þakkar fyrir stuðninginn sem fjölskylda hans hefur fengið í kjölfar árásarinnar en segir það alveg ljóst að fjölskyldan muni flytja frá borginni.
Athugasemdir
banner
banner