09.06.20 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spá þjálfara í 2. deildinni: 8. sæti

Fyrir leik gegn KV í bikarnum á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dino Hodzic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Garðar Gunnlaugsson.

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Kári 50 stig
9. Völsungur 47 stig
10. Dalvík/Reynir 40 stig
11. Fjarðabyggð 39 stig
12. KF 13 stig
Lokastaða í fyrra: Kári endaði í 10. sæti, fimm stigum fyrir ofan fallsæti. Liðið var í fallsæti eftir 15 umferðir en í kjölfarið unnust inn stig á meðan KFG vann ekki í mörgum leikjum í röð. Kári skoraði 3. flest mörkin í fyrra, tæplega tvö mörk skoruð í leik á meðan liðið fékk rúmlega tvö á sig í leik.
Þjálfarinn: Gunnar Einarsson var ráðinn þjálfari skömmu fyrir mót. Í frétt Skagafrétta fyrir mót kemur fram að þaulreyndur leikmaður væri að taka við þjálfarastarfinu. Ef tölfræði KSÍ er skoðuð þá er fyrsti leikur Gunnars sem þjálfara nú á dögunum gegn KV í bikarnum. Gunnar lék sem atvinnumaður í Hollandi og á Englandi. Hann vann Íslandsmeistaratitilinn fjórum sinnum sem leikmaður með KR og Val ásamt því að vinna bikarinn í tvígang. Gunnar hefur þjálfað undanfarin ár hjá Val en hóf sinn þjálfaraferil sem aðstoðarmaður Sigursteins Gíslasonar hjá Leikni á sínum tíma.
Álit sérfræðings
Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon eru sérfræðingar Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina og 2. deild karla. Úlfur gefur álit sitt á Kára.
„Kára liðið hefur alltaf verið með gríðarlegan sigurvilja og mikið Skagahjarta. Þeir eru fastir fyrir og fylgnir sér í öllum sínum aðgerðum. Þeir eru búnir að bæta hressilega í hópinn hjá sér og fengið sérstaklega öfluga leikmenn sem eiga eftir að gjörbreyta liðinu frá því í fyrra. Hraði og kraftur er þeirra helsti styrkleiki, til viðbótar við það í ár hafa þeir fengið leikmenn eins og Dino Hodzic, Einar Loga, Garðar Gunnlaugs og Jón Björgvin sem eiga eftir að koma með mikil gæði inn í liðið. Það er mikil stemmning sem fylgir Kára liðinu í ár, allur hópurinn kemur ofan af Skaga og eru tilbúnir í átök ef á þarf að halda. Ef þeir halda rétt á spilunum gætu þeir komið á óvart í ár. Þeir eru komnir með
feykilega öflugan markvörð eitthvað sem hefur vantað hjá þeim undanfarin ár, leikmaður sem m.a Leiknir Rvk var að reyna að fá í sínar raðir."
„Undanfarin ár hefur markmannsstaðan verið veikleiki fyrir Kára liðið svo verður ekki í ár. Kári hefur verið í vandræðum með stöðugleika í leikmannamálum. Þeir hafa misst góða leikmenn frá sér bæði yfir í ÍA og eins misst stráka út í skóla eða vegna annara mála. Ef þeir ætla sér alvöru árangur í sumar þurfa þeir að halda sínum bestu mönnum út tímabilið."
Lykilleikmenn: Dino Hodzic, Einar Logi, Andri Júlíusson
Gaman að fylgjast með: Það verður gaman að fylgjast með nýja markverðinum Dino Hodzic sem ersterkur í teignum og flottur markvörður. Garðar Gunnlaugsson hefur ákveðið að koma til baka og verður fróðlegt að sjá hvort hann nær að halda sér heilum ef svo er verður það mikill styrkur fyrir Káraliðið."
Gunnar Einarsson, þjálfari Kára:
„Hvorki ég né leikmenn mínir hafa skoðun á hvort spáin komi okkur á óvart né erum við að velta okkur upp úr því hvers vegna okkur sé spáð 8. sæti. Okkur er alveg sama um spár og hvað aðrir þjálfarar hugsa til okkar, við vitum hvað við viljum gera annað skiptir ekki máli."
„Deildin er sterk, hún er jöfn og verður skemmtileg. Mikið af flottum leikmönnum að spila í 2. deild, bæði reynsluboltar sem og ungir metnaðarfullir strákar sem vilja ná lengra. Markmið okkar einhuga er þegar við förum í leik að það verði hrikalega erfitt að spila á móti okkur og við tikkum þann dag. Það er ekki walk in the park að mæta okkur og við ætlum að sjá til þess, svo sjáum við í haust hvert það tekur okkur."
Er leikmannahópurinn klár?
„Hópurinn er tilbúinn, hann er sterkur og breiður og við klárir í slaginn."
Komnir:
Dino Hodzic frá ÍA
Einar Logi Einarsson frá ÍA
Jón Björgvin Kristjánsson frá Dalvík/Reyni
Garðar Bergmann Gunnlaugsson frá Val
Guðfinnur Þór Leósson frá ÍA
Birgir Steinn Ellingssen frá ÍA
Birgir Þór Sverrisson frá Skallagrím
Sigurjón Ari Guðmundsson frá Skallagrím
Fylkir Jóhannsson frá Skallagrím (var í 2.fl ÍA)
Andri Freyr Eggertsson frá Skallagrím (var í 2.fl ÍA)
Helgi Rafn Rafnkelsson frá Skallagrím (var í 2.fl ÍA)
Marvin Darri Steinarsson frá ÍA (er í 2.flokk ÍA)
Farnir:
Ragnar Már Lárusson í Aftureldingu (var á láni)
Indriði Áki Þorláksson í Víking Ólafsvík
Arnleifur Hjörleifsson í Kórdrengi
Gunnar Bragi Jónasson í Skallagrím
Arnar Freyr Siguðrsson hættur
Guðlaugur Þór Brandsson hættur
Sindri Snæfells Kristinsson hættur
Önnur félagaskipti eru aftur í 2. flokk ÍA
Fyrstu þrír leikir Kára:
17. júní Kári - Selfoss (Akraneshöllin)
27. júní Þróttur V. - Kári (Vogaídýfuvöllur)
2. júlí KF - Kári (Ólafsfjarðarvöllur)